09júní

ný síða

Jæja ný síða endilega skoða og kvitta að sjálfsögðu ;o)

http://123.is/unnurkidda 
09. júní 2008 klukkan 01:56
Unnur Kristinsdóttir
Engin athugasemd
19maí

Ætla að byrja á því að segja ykkur að ég kláraði þessa önn með stæl myndi ég segja er allavegana mjög ánægð með önnina en ég fékk 7 í öllu :o) Hitakerfi, neysluvatnskerfi, lagnateikningu og suðunni, er bara mjög sátt við þessar einkunnir miðað við að ég vissi ekkert hvað ég var að fara út í í upphafi annar :o)


Svo núna er ég bara komin í sumarfrí og er því bara að vinna 24/7, bæði sem pípari og svo var fyrsti slátturinn hjá Adda tekinn í kvöld, tókum okkur til og slógum fjóra garða og gekk það vel, Addi var á sláttuvél en ég á orfi, rifjaði upp þarna gamla takta þegar ég vann hjá Ak bæ og svo auðvitað ÓPA ehf :o) Verð væntanlega eitthvað í þessu í sumar með kallinum og græða smá auka pening :o)




ég og Addi að leggja af stað í sleðatúrinn :o)


ég flott mep nýja hjálminn ;o)

Ég ákvað að bruðla smá í dag, en ég fór og keypti mér myndavél, þokkaleg vél og verður hún klárlega notuð mikið í sumar :o) Enda finnst mér ömurlegt að blogga án mynda :o) Svo það verður eflaust mikið um myndir hérna inn á síðunni á næstunni :o)


Svo er flutningur á næsta leiti hjá mér og Andreu, þessi vika og næsta helgi fer í að hreinsa út úr íbúðinni í Oddeyragötunni, en það er að öllum líkindum búið að selja hana. Svo við erum að fara flytja heim í eyjuna góðu, eða allavegana Andrea, ég bý nú svo vel að hafa þak yfir höfðinu hérna á Akureyri hjá Adda, enda búin að búa þar síðan í mars :o)



þurftum að fleyta yfir á :o)



Og það tókst ;o)


En svona svo ég tali nú um það sem ég hef gert síðustu daga, á laugardaginn fórum við Addi á sleða í Flateyjardal, ágæt ferð svo sem en lítið um snjó til að byrja með en lagaðist þegar við vorum komin lengra inn í dalinn... Byrjuðum á sleðanum hans Tryggva en enduðum svo ferðina á túrbó sleðanum hans Finna, sem var alger snilld!! Prjóna upp yfir sig og þess háttar :o) Ferðin batnaði um helming þegar sá sleði var prófaður, ég sat aftan á í þetta skiptið svo ég var bara slök í þessari ferð :o) bara eitthvað að sjá þetta :o) Eftir góðan dag úti í fínu veðri var svo farið heim í sturtu því piparahópurinn sem ég er að læra með, við komum saman hjá Herði vini okkar og grilluðum og saman, og höfðum það mjög gott , þvílíkur hópur, það er alltaf gaman með þeim :o) Fengum okkur svo nokkra bjóra áður en við fórum í Sjallann á Pál Óskar, og að sjálf sögðu klikkaði hann ekki frekar en fyrri daginn :o) Geðveikur dagur, enda fór mín meira en sátt að sofa :o)


Átti svo yndislegan sunnudag heima í Hrísey.

Ætla að setja bara inn myndirnar síðan um helgina og fleira, svo endilega njótið :o)

19. maí 2008 klukkan 23:07
Unnur Kristinsdóttir
2 athugasemdir
14maí

Jæja þá eru prófin að klárast, fór í fyrsta prófið í dag og gekk það bara ágætlega það er allavegana staðið ég held að ég sé nú alveg pott þétt á því. Svo er seinna prófið á morgun í málmsuðu og plastsuðu. Hlakka til að klára þessa önn og geta farið að vinna bara :o)


Ég er hreinlega að verða geðveik mig langar svo hrikalega á sjó í sumar, ég hugsa ekki um annað og dreymir ekki annað, hef reynt að láta drauminn rætast en það gengur alltof erfiðlega, svo ef þú lesandi góður hefur tök á því að koma mér á sjó það myndi ég svara því játandi strax án þess að þurfa hugsa mig um. Segja margir að ég sé nú eitthvað biluð að vilja þetta en svona er nú fólk misjafnt :o)


Við systur erum svo að fara flytja úr Oddeyrargötunni í þessum mánuði, síðasta leigan var borguð núna fyrir maí, sem er mjög gott, hlakka til að eiga loksins pening :S Þetta er búið að vera strembinn vetur fjárhagslega séð, en hafðist þó á endanum. Það er nú samt svolítið langt síðan ég flutti út ég er búin að búa bara hjá Adda síðan í mars, og lifi bara góðu lífi þar með honum og teindó :o) HEHE enda eftir að Andrea fékk bílpróf þá hefur hún bara spjarað sig sjálf blessunin :o) Ég fæ ekki einu sinni að hafa coroluna, svo ég keyri bara um á BMW í staðinn, það er svo sem ekkert að því, en kindin er góð ;o)


Það gerist annars ekkert stórkostlegt hjá manni þessa dagana, bara lifi eins og meðal Jón og hef það fínt, skemmti mér annað slagið um helgar svona til að breyta til, það er doltið gaman að vera iðnaðarmaður, því það er alltaf tóm gleði, en þessar skemmtanir hafa hjálpað mér mikið að kynnast fólkinu í kringum mann í þessum bransa og auðvitað samstarfsfélögum mínum sem eru allir þrír yndislegir í alla staði, virkilega þolinmóðir og tillitsamir og hlægja frekar en að verða reiðir, það hefur alveg bjargað mér því þegar ég byrjaði þá vissi ég hreinilega ekki neitt :o) En með hjálp þeirra er þetta allt að koma smátt og smátt og eftir sumarið þá ætti ég að vera farin að læra þetta svona þokkalega eða ég hef trú a því.


En vildi bara halda þessu bloggi hérna lifandi, og gaman væri að fá comment ;o)

Farðu í rassgat ;)

14. maí 2008 klukkan 20:14
Unnur Kristinsdóttir
3 athugasemdir
05maí

Já best ég standi við orð mín ;o)

 

Ég átti frábæra helgi með góðum vinum og á góðum stað, en á föstudagskvöldið þá fór ég á sálfræðilega undirbúningsæfingu með samnemendum mínum, því á laugardagsmorgun kl 8:00 fórum við á Ólafsfjörð og tókum þátt í geðveiku bandýmóti sem haldið var í íþróttahúsinu.

 

Þegar í bæinn sem sagt Ólafsfjörð var komið þá fórum við beint í morgunmat til Jóns Valgeirs ristaðbrauð og mjólk, sem var alger snilld, sumir fengu sér reyndar bjór en ég var nú ekki stemmd í það svona snemma dags :o) Við tókum lagið og allir voðalega hressir og kátir, enda spennann alveg geðveik… Upp úr 11 fórum við svo í íþróttahúsið með smá viðkomu í Tjarnarborg en þar var hittingur fyrir mót. Gengum svo öll saman, öll liðin sem tóku þátt í átt að íþróttahúsinu og þegar þangað var komið þá var hvert lið með smá kynningaratriði, Börkur samdi lag og texta fyrir okkur sem við frumfluttum svona líka glæsilega og á mótinu sjálfu þá stóðum við okkur bara mjög vel en við lentum í öðru sæti, spiluðum úrslitaleikinn sem var alger snilld, það tóku alls 15 lið þátt :o)

 

Þetta mót var sem sagt alger snilld, og eftir mót var farið í sund enda allir orðin vel sveittir og ógeðslegir :o) Síðan var haldið aftur heim til Jóns og sátum við þar í þvílíkri blíðu út á palli og þar með var fyrsti bjór opnaður hjá mér, sátum sem sagt úti og sleiktum sólina, borðuðum pizzu og drukkum bjór og hlógum og töluðum saman þangað til klukkan gekk í half 9 þá var farið í Tjarnaborg á lokahóf bandýmótsins, þar voru nokkur verðlaun veitt og fékk ég t.d. verðlaun fyrir að vera nýliði ársins 2008 og svo fékk allt liðið verðlaunapening og bikar fyrir að vera nýlið ársins, sem sagt við fórum ekki tómhent heim ;o)

 

Eftir verðlaunaafhendinguna var svo ball og hélt bandýbandið upp stuðinu fram á nótt, dansaði þarna örfá dansspor og fór svo á Dalvík og hitti þar nokkra kunningja áður en ég fór svo heim, en ég kom ekki heim á Ak fyrr en klukkan að verða 7 og þegar ég loksins sofnaði upp úr half 8 þá var mín aldeilis búin að vaka í góðann sólarhring. :o) En allt var þetta þess virði því ég hef sjaldan skemmt mér svona vel, enda er búið að ákveða að þetta verður sko endurtekið á næsta ári og ég get hreinlega ekki beðið….

 

En sunnudagurinn var kannski ekki upp á marga fiska, þreyta aðalega og ju smá timbruð líka :o) En það var sko alveg þess virði, ég er ekkert að grínast með að þetta er eitthvað það skemmtilegasta djamm sem ég hef nokkurn tímann farið á :o)

 

Svo í dag mánudag var bara farið í vinnu klukkann 8:00 og var að vinna til half 11 í kvöld, mjög hressandi :o) Mér skilst að þessi vika verði þannig bara yfirvinna og svona gaman, en mér er sama, yfirvinna er alltaf góð ;o)

Það er líka svo gaman í vinnunni :o) Hlakka til að vera pípari í allt sumar og læra eitthvað nýtt :o)

 

En þetta blogg er nú aldeilis orðið gott vonandi að þið hafið haft gaman af lestrinum, ég hendi svo inn myndum af þessu móti þegar ég kemst í myndir :o)

Bið að heilsa í bili, og takk fyrir kvittið Dagný :** Ég verð að fara gefa mér tíma í að koma í heimsókn, þú veist líka ef þig langar að skreppa aðeins út á kvöldin þá eru nú flest öll kvöld hjá mér frí ;o)

Kv. Unnur :o)

05. maí 2008 klukkan 23:36
Unnur Kristinsdóttir
1 athugasemd
01maí

uff

Jæja þið eruð sjálfsagt alveg hætt að lesa þetta blogg, en er bara svona til að láta vita að ég er nu ekki alveg hætt að skrifa hérna inn, það er bara svo margt búið að gerast síðan síðast og ætla því ekkert að fara tala um það neitt heldur bara byrja í raun á deginum í dag og framhald af því svona vonandi á næstu dögum :o)

Af mér er fínt að frétta er nú eiginlega alveg flutt heim til Adda núna í Klettaborgina og hef það mjög gott bara hjá teindó :o) Mér líður allavegana vel í kringum fólkið hans sem skiptir miklu máli.

Ég er bara að vinna núna skólinn búinn, þarf að mæta í tvö próf 14. Og 15. Maí og þá er ég endanlega búin með skólann, sem er mjög gott :o)

Píparastarfið legst vel í mig, núna fer maður að vinna við þetta bara allann daginn og hlakka ég mikið til :o)

Æjj ég veit hreinlega ekkert hvað ég á að skrifa hérna en ég skal vera búin að semja gott blogg fyrir næsta skipti. Ætla láta bara myndir hérna svo þið getið séð hvað ég hef verið að gera upp á síðkastið :o)

Gaman að segja líka frá því að á laugardaginn síðasta varð ég 19 ára gömul ;o)






Ég fór upp á kaldbak :o) ásamt fjölskyldunni og Adda :o)


Ég og Addi fórum upp á sleða en hinir fóru með troðaranum :o)


Það var geggja veður :o)


Komin upp og allir að kafna úr hita :o)




ég og Addi :o)


Andrea og Árni :o)


Svo var snæðingur þegar við vorum búin að fá smá útrás :o) En við renndum okkur niður :o)


Pabbi var á stigasleða :o) og Andrea sést þarna hún fór niður á snjóbretti :o)


Ég fór hins vegar niður á diski að hluta og....


á bretti restina það var sko gaman og krafðist mikillar einbeitningar... :o)


Árni fór niður á bretti líka :o)


og mamma fór niður á diski, Addi greyið gat ekkert leikið sér þar sem hann var ekki nógu góður heilsulega séð svo hann fór bara rólega niður á sleðanum aftur :o)

01. maí 2008 klukkan 17:21
Unnur Kristinsdóttir
3 athugasemdir
03mars

finally

Sveiattann, skammastu þín Unnur.

Veit nu ekki hvað ég er að gera með þessa bloggsíðu, þar sem ég hef engann tíma til að smíða þessi blogg sem ég var svo öflug í fyrir ári síðan þá voru sko stundum tvö á dag :O En nuna kannski eitt í mánuði...

Ég fer nu bara í skólann á morgnanna og svo vinna eftir hádegi fram eftir kvöldi og eftir vinnu hefur maður verið að brasa ýmislegt, svo sem gera við sleða, þrífa og bóna coroluna ;o) Og fara á sleða, rúntinn, í brynju að fá sér ís, sund bara name it, maður finnur sér alltaf eitthvað að gera, það vantar sko ekki.

Ég hef einmitt ekkert farið út í Hrísey svona af einhverju viti í ég veit ekki hvað langann tíma, ég man hreinlega ekki hvenær ég var síðast heila helgi út í eyju, það er orðið svo langt síðan enda sakna ég eyjunnar mikið, bjargar því að mamma og pabbi hafa verið dugleg að koma í bæinn... En Árni bróðir samt alltaf heima svo það fer að koma tími á að eyða smá tíma með honum...

Svo er Andrea farin að vinna á öðrum stað og aldrei heima núna á kvöldin, svo þetta er hálf skrítið hérna, ein í kotinu fram eftir kvöldi... en maður hefur svo sem haft nóg að gera.

Píparanámið gengur svona bæði og, stundum alveg ferlega erfitt en svo koma dagar inn á milli sem eru fínir, vinnan gengur líka vel eða svona bara eins og það á að vera held ég, ég fékk t.d. að leggja og hanna eigið gólfhitakerfi inn á baðherbergi um daginn, Bjössi fór bara, og ég klóraði þannig gat á hausinn á mér á meðan en tókst nú að leysa þetta eftir smá tíma, það var á einum stað þar sem kannski of mikið var á milli lagnanna en hann fyrirgaf það nu alveg :o) En þetta var samt gaman :o)

Svo ef klósettið hjá ykkur er eitthvað leiðinlegt að sturta niður þá er ég komin með bs gráðu í klósettstillingum ;)

Annars er ég að fara segja upp skúringunum, þetta fer svona alveg að ná hámarki, ekki langt í að ég gefist endanlega upp *-) ætla að taka mars mánuð og svo huga að því að hætta þessu, því ég er jú að vinna oft til hálf 7 og þá kemst maður ekki að skúra fyrr en upp úr 7 og er búin um 9 :S þetta er ekkert voðalega spes, borða seint, læra seint, sofa seint, sama sem þreyta.... Enda hef ég fínt upp úr því að vera pípari og barþjónn.... Við erum líka að fara flytja heim í Hrísey í maí svo þetta verður allt í lagi, kannski apríl mánuður erfiður en ekkert mikið meira, íbúðin sem við erum í er komin á sölu, svo þeir sem hafa áhuga þá er þetta mjög fínt hreiður ;o) HEHE

Ég fór heim í Hrísey á föstdudag, og hafði það gott heima, í góða veðrinu, fór um kvöldið út að renna á stigasleða, og gerði einnig smá snjókúlu at í pólverjunum ;o) Maður stakk sér bara í púðrið til að fela sig, þetta var útrás :o) HEHE, tók svo laaanngann göngu túr, mokaði stéttina heima og fór annan göngutúr og svo heim undir sæng, viðurkenni að ég var mjög lengi að ná í mig normal líkamshita mér var orðið svakalega kalt undir það síðasta í seinni göngutúrnum en það var þess virði, alveg blanka logn og maður hefði geta heyrt í mús tísta ef það væru mýs í Hrísey ;o) Og ekki má gleyma að það var yndisleg snjókoma :o)

Kíkti svo á Húsavík þriðju helgina í röð, og skemmti mér alveg konunglega þar eins og vanalega ;o)

En læt þetta duga næsta mánuðinn eða hvað? :o) HEHE

03. mars 2008 klukkan 20:14
Unnur Kristinsdóttir
2 athugasemdir
08febrúar

Heyrðu já ég á víst bloggsíðu, þið verðið að afsaka hvað ég hef verið slök í þessu, ennnn það er bara svo mikið að gera að ég hef hreinlega ekki nennt að setjast við tölvuna og blogga, eiginlega ekkert litið í tölvu þannig lagað nema þá rétt til að kíkja á heimabankann og búið til að borga heimilisreikingana sjáiði til :o)


En af mér er allt ljómandi gott að frétta, ég er bara í skólanum fram að hádegi alla daga, og fer að vinna svo strax eftir skóla til 6 sem pípari og svo fer ég að skúra upp úr 6 til rúmlega hálf 8 – 8  og svo fer maður og leikur sér hvort sem það er á sleða, eða bíl, eða hreinlega bara úti í snjónum, fer í sund og þess háttar , svo það er nóg að gerast :o)


En að vinna sem pípari er mjög gaman, er virkilega heppin með samstarfsfélaga, nett ruglaðir eins og maður er vanur. Bjössi og Húni t.d. eru í svaka baráttu með að láta mig fýla Sigurrós, en þeir eru mikið fan á þá ágætu drengi í þessu bandi,  en það gengur hægt hjá þeim, þetta er klárlega sú tegund af tónlist sem ég mun held ég aldrei fýla. Og ef maður gerir mistök þá er bara hlegið að manni, og ekkert mál... Svo ekki nóg með það að allir hinir pípararnir í kringum mig eru bara ein grillveisla, svo mér líður rosalega vel í þessum bransa... Er búin að læra ýmislegt, meira en nokkurn tíman í skólanum, það er á hreinu.. Það gengur allt svo hægt í skólanum..


Á þessum mánuði sem ég hef unnið sem pípari er ég búin að koma við á mörgum stöðum , byrjaði á því fyrstu vikuna að fara á Rútsstaði inn í Eyjafirði, að brasa í ofnalögnu, þvílíkur kuldinn á þeim bænum skal ég segja ykkur, var freðin á tánum eftir þá ferð, sem hefur reyndar oft gerst í þessum geira, mér er nánast alltaf kalt á tánum :o/ samt í ullarsokkum. En já svo hef ég verið að vinna mikið á Grenivík, einmitt í ofnalögnum, setja upp algerlega nýtt ofnakerfi og hreinlega lagnakerfi eins og það leggur sig í eitt hús þarna,  það hefur verið mjög gaman, keyra á Grenivík eftir skóla og fara í verklegann skóla, svo er þriðji áfangastaðurinn enn sem komið er Hjaltastaðir í kinninni, fyrir austann, þar erum við einmitt að fara setja upp ofnakerfi, í nýtt hús þar, svo þetta er allt mjög spennandi og gaman að ferðast svona á milli bæja og sjá eitthvað nýtt... En segi það ekki að það er mjög gaman að vera hérna í bænum líka. Bjössi sem ég vinn sem sagt hjá, hann sér um stórann part af fasteignum Akureyrarbæjar svo sem sundlaugarnar, skólana, leikskólana og þess háttar, sambýlin og svona, svo það er ágætt að gera þar, ég er t.d. búin að afreka það að taka í sundur einn varmaskipti fyrir Glerárlaug, og þrífa hann upp úr flísa og vaskahreinsi og setja hann samann aftur og upp í laug, bara það að hafa tekið þennann varmaskipti í sundur og sett hann samann aftur, er ég bara orðinn reynslunni  ríkari en margir píparar, veit t.d. um einn sem hefur verið starfandi við pípulagnir í hátt í 20 ár en aldrei tekið í sundur svona varmaskipti :o) Gott að byrja á svona fyrsta mánuðinn ;o)


Annað gengur bara vel, skúringarnar og Sjallinn, og sambúðin gengur fínt, Andrea loksins komin í aðra vinnu, betur launaða vinnu svo nuna loksins er kannski hægt að leyfa sér eitthvað meira, leyfðum okkur reyndar að fá okkur stöð 2 í byrjun Janúar, og borgum við af því samviskusamlega bara, höfum einu sinni lent í veseni fjárhagslega séð, en það reddaðist nú, og það verður ekkert svoleiðis aftur :o)


En svona í lok þessa bloggs vil ég óska Dagný, Pétri, Tönju og Sunnevu innilega til hamingju með litla guttann :o*


Minni svo á þorrablótið næstu helgi, það verður klárlega mætt á það og haft það gaman, með góðu fólki, á síðasta þorrablótinu í Sæborg :o)

En takk og bæ ;o)


   
08. febrúar 2008 klukkan 00:49
Unnur Kristinsdóttir
1 athugasemd
31desember

Annáll 2007

Nýjar myndir í myndaalbúmi endilega skoða og muna að kvitta fyrir komuna :o) Gleðilegt nýtt ár allir saman og hafði það gott á nýju ári :o)


Þann 26.apríl varð ég síðan 18 ára, merkisdagur í lífi hvers unglings að ná 18 árunum enda eftir það hafa opnast margar dyr. Þetta var fínn dagur, eygló amma bauð mér í bakarí og út að borða og fékk ég smávægilegar afmælisgjafir svona rétt í tilefni dagsins.


Daginn eftir eða 27.arpíl var ég svo komin í sumarfrí og var því brunað strax heim samdægurs, og við tók smá afslöppun í eyjunni góðu.


Byrjaði síðan að vinna hjá Óla frænda mínum eða ÓPA ehf, við að slá og sá ég um Hríseyjarsvæðið ásamt Guðmundi í allt sumar, vorum svo með Andreu og Ásgeir svona sem litlar hjálparhellur til að geta rakað og hirt up grasið eftir okkur. Stóðum okkur að sjálfsögðu með prýði og áttum gott samstarf saman :oP


Fór á svokallað frumnámskeið með ÓPA ehf gegninu, sem sagt Olla, Unnari, Fannari og Guðmundi og lærðum þar allt bóklegt um svona minni vélar, og eftir bóklega námskeiðið var síðan farið í verklegt próf sem mín stóðst og er ég því með réttindi á traktor með tækjabúnaði og minni jarðvinnuvélar :o) Bara gaman að því.


Gaman að segja frá því að ég fór einu sinni á sjó í sumar, með honum Dodda vini mínum og Magnúsi, í blanka logni og hita, það hefði verið skandall ef ég hefði orðið sjóveik, en það slapp allt til og lærði að leggja línu, draga línu, blóðgaði fisk og landaði eins og alvöru sjóari :o)


Um miðjan júlí byrjaði ég svo hjá kambnum mínum, og eftir það var ekkert elsku mamma það var unnið eins og brjálæðingur, þó svo að maður hafi kannski ekki mikið tekið eftir því, því það var alltaf gaman í vinnunni, enda sakna ég þess í dag að vinna ekki á svona vinnustað, frábær vinnuveitandi þeir hjá kambnum :oP Enda var maður í því sem maður hefur jú áhuga á :o)


Svo kom hin árlega Hríseyjarhátið sem að sjálfsögðu var skemmt sér konunlega á og hitti maður fullt af fólki og skemmti sér vel með vinum sínum.


Í ágúst var svo bara unnið þar til skólinn byrjaði og tók við nám að þessu sinni á grunndeild byggingaiðnaðar, lennti í mjög skemmtilegum hóp í verklegu áföngunum og samdi okkur öllum rosalega vel og skemmtum okkur vel saman. Ég hætti nú samt ekki hjá kambnum strax en ég keyrði á milli svona til að byrja með þegar ég gat og skólinn leyfði, til þess að fá útborgað, því við systur legjum í oddeyrargötu 6a eins og lesendur þessarar síðu hafa eflaust tekið eftir :o)


Svo þegar líða tók á haustið þá fór vinnan hjá kambnum minnkandi þar sem ég fékk vinnu við að skúra leikskólann Krógaból eftir að Pétur var svo góður að tala svona vel um mig sem meðmælandi, svo ég þakka enn og aftur fyrir það :o) En átti jú enn nokkra daga inn þar til 2.nóvember þá byrjaði ég að vinna í Húsasmiðjunni og eftir það var maður alltaf fastur í bænum því ég byrjaði einnig í Sjallanum í byrjun haustsins svo það hefur verið mikið að gera þegar skólinn var líka í gangi.


En það má ekki gleyma hápunkti ársins, en síðustu tveir mánuðir á þessu ári hafa verið alger sæla, með honum Adda mínum, eftir að hafa beðið eftir honum í 10 vikur þar sem hann var erlendis eða í Englandi í enskuskóla. Já það var erfitt en það hafðist allt og höfum við átt yndislegar stundir saman, bæði á Akureyri, Skarði, Hrísey og í raun allstaðar þar sem við komum. Og hlakka ég til að lifa lífinu með honum á nýju ári :o)


Annars hafa síðustu dagar ársins verið yndislegir í faðmi fjölskyldunnar og Adda að sjálfsögðu líka, og hefur maður hvílst vel og tek við nýju ári hress og kát í kvöld :o) Svo ég óska ykkur bara Gleðilegs nýs árs og gangið hægt um gleðinnar dyr :o)

31. desember 2007 klukkan 16:12
Unnur Kristinsdóttir
2 athugasemdir
29desember

Annáll 2007.

Þá er gott að koma með annálinn sem ég var búin að lofa að gera og vona að ég verði öflugri á nýju ári í bloggi en til þess að ég vilji blogga þá vil ég coment! ;o) Þessi annáll verður í tveimur hlutum svo þetta verði ekki of langt, framhald kemur síðasta dag þessa árs, enda getur margt skeð á næstu  dögum :o)

En já árið 2007 byrjaði að sjálfsögðu með skemmtilegum dansleik í Sæborg, og var skemmt sér konunglega fram eftir nóttu og nýársdagur tekinn í frekar mikilli þynnku og pakka niður því mín ákvað að skella sér í borg óttans í skóla.


Já þann 2.janúar þá flutti ég suður til Ellu frænku og Árna og Óla. Hóf síðan nám í Flensborg og líkaði það vel. Lærði þar grunn að fjölmiðlafræði sem mér fannst mjög spennandi efni.


Lífið fyrir sunnan var svona upp og niður, en hins vegar mjög einmannalegt og ekki bætti það þegar vinir manns voru stanslaust sendandi sms eða hringja og segja manni að hafa sig heim af flatlendinu og vera bara fyrir norðan, játa að maður fékk því heimþrá en maður beit á jaxlinn. Ég lifði mjög góðu lífi hjá uppáhalds frænku minni og hafði það bara mjög fínt, gekk vel í skólanum og fékk meira að segja vinnu í beitningu niður á Hafnarfjarðarhöfn. Ég kynntist nú ekki mörgum á meðan ég dvaldi fyrir sunnan en jú kynntist honum Hjalla mínum, yndislegur strákur í alla staði og áttum við góða tíma saman :o) Moggastrákurinn minn ;o) HEHE kynntist að sjálfsögðu fólki í kringum hann eins og Gumma og Einsa og fleiri sem ég hreinlega man ekki nöfnin á :o)  Ég átti heima í Stjörnusól þegar ég bjó fyrir sunnan eins og ættingjar og vinir tóku eftir, enda held ég að ég hafi sjaldan verið svona brún eins og þá. Enda var ég komin í persónuleg næstum því viðskipti við eiganda Störnusólar í Hafnarfirði ;o) HEHE góðvinur minn, þessi handalausi sem ég fékk aldrei nafnið á :o) Gæti nú endalaust talað um dvöl mína fyrir sunnan, því það var skemmtileg upplifun sem ég svona sé pínu eftir að hafa ekki bara haldið áfram í, en sé svo sem ekki heldur eftir því að hafa flutt norður aftur.


Strákarnir sem ég kynntist frá vinstri Hjalli, Einsi, Gummi og Freysi :o)

En svona svo ég haldi áfram með árið þá fór ég norður á þorrablót í Hrísey þann 10.febrúar, raddlaus og skemmtileg, mér var að sjálfsögðu tekið mjög vel, og svona fyrir utan að hafa setið með fjölskyldunni á matnum þá var ég nánast allt blótið með Sigga Blö, Pétri, Dagný, Gauta M, Rúnu og Bogga, sem var virkilega skemmtilegt og yndislegt í alla staði. Í þessari norðurferð eignaðist ég minn fyrsta bíl Toyota Corolla 96‘ og hef ég hugsað vel um þann bíl síðan ég fékk hann, en hann hefur reynst mér mjög vel og kemst ég leiða minna auðveldlega án þess að vera í vafa um hvort ég komist það eða ekki :o) En eg fór á bílnum suður eftir blót og gat því loksins farið á bíl í skólann, en ég þurfti áður að labba í 20 mín til að fara í skólann, það var mjög erfitt.


En svo tók var við gangur lífsins, skóli, beitning, ljós, sinna Stuðlabergi 48 og hafa það gott með fjölskyldumeðlimum :o) Þar til páskarnir komu en þá var einmitt rennt norður og var þar alla páskana, og hafði það gott með fjölskyldunni.

Einhverntíman í mars var ég ein heima í Stuðlabergi 48 í viku en það ákváðu allir að skella sér á Kanarý nema ég, ég þurfti víst að sinna skólanum, svo það var mjög einmannalegt lífið þá, fór bara til ömmu og afa í mat og hékk tímunum saman í tölvunni og vægast sagt lét mér leiðast. En það bjargaði því að pabbi kom suður þessa viku og var með mér í 4 daga eða svo, brallaði ýmislegt með honum þá og simma Jóa líka, sem var að sjálfsögðu mjög gaman :o)

framhald seinna og svo comment :o)

29. desember 2007 klukkan 02:00
Unnur Kristinsdóttir
Engin athugasemd
07desember

koment a þetta!!!!

Jaaa strákar, ekkert stórfenglegt hefur gerst hér hjá okkur systrum í Akureyrinni, nema hvað að prófalestur hefur átt sér stað hjá okkur, ásamt því að vera vinna og læra bara á kvöldin. Sá árangur hefur skilað sér vel en ég hef náð öllum prófum hingað til, náði stærðfræðinni með slefeinkunn 5, en þó náð!! Og svo náði ég efnisfræði með 7. Gaman að segja frá því að ég hélt að ég ætti ekki að fara í það próf fyrr en 10. Des svo á mánudaginn þá var í góðum fýling á leiðinni heim í Hrísey þegar Addi hringir og spyr mig hvort ég eigi ekki að fara í sama próf og Elva Mary á þriðjudagsmorgninum kl 8 í efnisfræði, ég fékk svona sjokktilfinningu og athugaði próftöfluna og juju það var þannig, svo að draumurinn um að komast heim í eyju var aldeilis ekki að gera sig þann daginn, dreif mig að skúra og var komin heim um 7 og þá var byrjað að læra í efnisfræði þangað til klukkan var orðin hálf 3 um nóttina þá ákvað ég að leggja mig. Þvílikt stress í gangi þennann daginn, mjög óþæginlegt þar sem það var svo mikið lesefni í þessum áfanga, en þetta hafðist allt og stóðst ég áfangann með 7!!


En þrátt fyrir stress í prófum og prófalestri þá nálgast víst jólin og gerðum við systur 3 smákökusortir hérna í litla kotinu á laugardaginn síðasta, á meðan mamma, pabbi og Árni bróðir bökuðu öll saman heima í Hrísey, þið getið ekki ímyndað ykkur hvað okkur langaði að fara heim þá!! Munum ekki eftir smákökubakstir með pabba!! Þau voru þarna í góðum gír með jólatónlistina í gangi að baka öll saman...Skyndilega kom ægileg heimþrá í okkur systur en við urðum að bíta á jaxlinn og reyndum að skapa okkar eigin jólastemmningu með jólatónlist og smákökubakstri sem var svo eiginlega bara ekkert góður, nema kannski kókoskúlurnar... en það þýddi víst ekkert að væla yfir því.


Mér kvíður fyrir þegar prófin eru búin þann 12.des, en þá tekur við stanslaus vinna alla daga fram að Þorláksmessu, og fæ ég meira að segja að fara fyrr heim úr vinnunni svo ég nái 5 ferjunni heim í Hrísey til að ná skötunni hjá ömmu og afa í tæka tíð. Þetta verður hressileg törn, en ég er náttúrulega líka að vinna í Sjallanum á nóttunni svo það verður ekki mikið um svefn í næstu vikurnar, því það er breyttur opnunartími í Húsasmiðjunni og er opið núna á sunnudögum líka, svo helgina fyrir jól þá er opið til 22, og ég að vinna í sjallanum líka, svo ég ætla rétt að vona að launaseðlarnir verði af einhverju viti á nýju ári :o)


Fékk nú samt smá innblástur af jólunum, á sunnudagskvöldið en mér og Adda var boðið í mat hjá Írisi systur hans, og var þar á borðum bajoneskinka minnir mig, helvíti góð og komst enn þá meiri jólafýlingur í mig. Finn fyrir mun meiri jólastemmningu núna en í fyrra, því eins og þeir sem standa næst mér, vita að eg var fárveik frá 13.des fram að áramótum, svo mín jól í fyrra voru eiginlega bara í rúminu. Í einangrun, haha en ég lá í rúminu með lokað inn til mín og það kom eiginlega enginn inn í herbergi til min nema mamma til að rétt kanna hvort ég væri ekki alveg örugglega lifandi :o) Það var sofið mikið þau jólin :oP En ætla að njóta þess núna þessi jól að vera með fjölskyldu og vinum.


Ótrúlegt samt hvað árið er fljótt að líða, og er ég farin að rifja upp hvað ég gerði á þessu ári, svo ég geti sett inn annál fyrir ykkur 31.des :o)


En læt þetta gott heita í bili, kem svo með skemmtilegt myndablogg eftir helgi þar sem þið sjáið hvað ég gerði um helgina ;o)


Takk og bæ!!

07. desember 2007 klukkan 13:51
Unnur Kristinsdóttir
3 athugasemdir

Auglýsing

Ég í hnotskurn

  • Nafn: Unnur Kristinsdóttir
  • Netfang: unnur_@hotmail.com
  • Staður: Hrísey
  • Heimilisfang: Austurvegur 8

Stutt lýsing á bloggaranum.

Er 18 ára einhleyp stelpa óg bý í Hrísey( vona að það sé ekki verra) og hefur gaman af því að prófa eitthvað nýtt. Er mikil ævintýra manneskja og elska eitthvað action. Finnst gaman að allskonar íþróttum svo sem vatnasporti, sem er reyndar í mínu tilviki sjósport þar sem í Hrísey er ekkert almennnilegt vatn til að leika sér í. Finnst gaman að veiða hvort sem það er á bryggjupollanum eða bara úti á sjó. Hef einnig mikinn áhuga á sjómennsku og langar að komast á sjó. Bílar eru líka áhugamál hjá mér samt ekkert of mikið en finnst gaman að skoða fallega bíla og væri til í að eignast fallegan bíl í framtíðinni, helst gamlan lincoln árg ' 62 sem er pínu svona pimp my ride :o). Mótorkross er svona ágætt þó aðalega í playstation ;o) Svo er þetta venjulega bara, tónlist vinir, djamm og að sjálfsögðu myndarlegir karlmenn :o) Myndi segja að ég sé sérstök stelpa með sérstök áhugamál.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...